4. júl. 2005

nú og ..!



Fínt MaLus gigg um daginn, fín mæting og stemming. Ég fékk lánaðann "Ampeg PortaBass 250" magnara í Tónastöðinni. Sett'ann aðeins í samband heima en það vildi ekki betur en svo að það sló út rafmagninu, hann er aðeins kraftmeiri en hinn kettlingurinn (þó að hann hafi verið nóg þannig séð..!). En með smá tilfærslu gat ég tékkað á honum fyrir giggið. Sándaði bjútíful...! Það fór hins vegar soldið fyrir ofan garð og neðan þarna niðr'á Pravda. Bassi (og tíðnir þess hljóðfæris) geta verið tregar í taumi undir vissum kringumstæðum. Ég var staðsettur í miðri bassagryfju (bassatíðnirnar ýkjast sem sagt upp á ákveðnum stað, þannig að mér fannst bassinn vera hátt stilltur þótt það skilaði sér ekki út í sal. Hefði sennilega verið betra að hafa magnarann bara á gólfinu í þessu tilviki og jafnvel á milli trommna og gítars. Eníhú. Svo stóð til að MaLus mundi dunda sér við demó upptökur á sunnudeginum, en ekkert varð nú úr því af einhverjum ástæðum. Þannig að ekki fékk ég að prufa magnarann meira fyrr en á æfingu með M-Projectinu í kvöld. Kom sérdeilis vel út. Svo verð ég að fara að fá strengi í Laklandinn þetta gengur ekki ... djöfuls... *'#?*!" ... pantaði DR strengi frá Lakland fyrir um 3 vikum síðan. HLJÓTA að fara að skila sér.

Annars er ég bara að undirbúa mig andlega (go figure!!!) fyrir væntanlega flutninga. Ég kann ekkert að flytja. Ég flutti seinast í alvörunni þegar ég var 6 ára (og þá að sjálfsögðu með foreldrum mínum. Tek það ekki með að hafa verið að selflytja mig frá Borgarnesi til Reykjavíkur í nokkur ár.

Í iTunes akkúrat NÚNA: If ... með Hiromi
Hiromi (piano)
Anthony Jackson (bass)
Martin Valihora (drums)

Mjög flott lag. Minimalíst en þó rhythmískt. Killer sóló frá meistara Jackson. Nú sem og hinu unga píanóundri (Japanska kvendið Hiromi er fædd 1979 ef ég man rétt)

1. júl. 2005

Sænskur ostur...

Hmm ... Voulez Vous með ABBA gert að svartasta sálardiskói... af svía .. ef ég skil þetta rétt. Tjékk it át.



úff ... hefði mátt sleppa rappinu í þessu lagi...!

30. jún. 2005

Malus á Pravda í kvöld kl. 22:00

FRÍTT INN.



Malus:
Ása Bjarnadóttir - söngur
Birgir Baldursson - trommur
Sigurður Þór Rögnvaldsson - gítar
Sigurdór Guðmundsson - rafbassi

28. jún. 2005

Just another day at the ....

Malus æfing í morgunn. Skrapp í ræktina. Búðaráp fyrir og eftir. Engir bassastrengir til á landinu sem henta. M-Project æfing í kvöld.

Malus tónleikar á næstunni:

30. Júní - Pravda
21. Júlí - Hressó
31. Júlí - Hressó

Dagsetning M-Project tónleikanna er enn þá á reiki.

27. jún. 2005

Eyfellskir sundgarpar.

Ég rabbaði helling við afa minn um helgina. Fann þessa mynd af honum (á netinu) og fleirum við Seljavallalaug á árum áður. Hann stendur fremst á myndinni (6. frá vinstri).

Árni Sigurðsson á Bjarkarlandi (Árni Kristinn Sigurðsson) var föðurbróðir Baldvins afa. Eini albróðir Kristjáns Sigurðar Sigurðssonar langa-afa míns.



Sundnemendur og kennarar við Seljavallalaug árið 1928, tekin á myndavél Árna Sigurðssonar á Bjarkarlandi. Kennararnir sem standa aftast eru Leifur Auðunsson í Dalsseli (t.v.) og Árni Sigurðsson á Bjarkarlandi. Nemendurnir eru, talið frá vinstri: Ólafur Guðmundson á Núpi, Sveinn Kristjánsson í Miðeyjarhólma, Kjartan Björnsson á Efstu-Grund, Sveinbjörn Sveinbjörnsson á Efstu-Grund, Ólafur Kristjánsson á Seljalandi, Baldvin Sigurðsson frá Steinmóðarbæ (býr nú í Eyvindarhólum), Magnús Sigurjónsson í Hvammi (aftan við Baldvin), Jón Einarsson á Núpi, Einar Sæmundsson í Stóru-Mörk (framan við Jón), Axel Magnússon á Núpi, Leó Ingvarsson í Neðra-Dal, Einar Jónsson á Ásólfsskála (framan við Leó), Gísli Einarsson á Núpi, Magnús Kristjánsson á Seljalandi og óþekktur nemandi.

Steinmóðarbær mun verða í hlutverki hús á sléttum Ameríku í kvikmynd Sigurjóns Sighvatssonar og Baltasar Kormákar A Little Trip to Heaven.

26. jún. 2005

Athyglisverð helgi.

Föstudagur: Er orðinn eigandi að húsnæði. Gigg með Malus í Borgarnesi (hér hafa fæst orð minnsta ábyrgð).

Laugardagur: Fjölskylduhittingur systkina móður minnar á Eyvindarhólum undir Eyjafjöllum. Leiðinlegt veður á laugardeginum en var orðið fínt í dag. Margt athyglisvert annars.

Sunnudagur: Tónleikar með Tyft á Pravda. Mjög flott stuff hjá Hilmari og co.

Almennt... mjög lítið sofið þessa helgi. Best að bæta úr því fljótlega.

24. jún. 2005

Hljómsveitin Malus leikur á Búðarkletti í Borgarnesi í kvöld.

Tónleikarnir hefjast kl 22:30.

Malus verður í ljúfri stemmingu framan af kvöldi en bregður sér svo í groove gírinn. Jazzað popp, funk, r&b, jazz og blús verður í hávegum haft.

Tónlist eftir t.a.m. Sting, Stevie Wonder, George Michael.
Lög þekkt í flutningi: Soundgarden, Dionne Warwick, Marvin Gaye, Björk, Erykah Badu, Simply Red, Bruce Hornsby, Chet Baker, o.fl., o.fl.!

Malus skipa:
Ása Bjarnadóttir - söngur
Birgir Baldursson - trommur
Sigurður Rögnvaldsson - gítar
Sigurdór Guðmundsson - bassi

Aðgangseyrir er 1000 kr.

Vonandi sér maður sem flesta í góðum fíling.

21. jún. 2005

Grannar.... þó ekki magrar.

Svona af því ég fer að flytja...!

Ég virðist eiga nokkuð músíkalska nágranna .. sem er í sjálfu sér mjög eðlilegt. Í gegnum tíðna hef ég heyrt gítar spil í formi þungarokks æfinga, berast í gegnum vegginn sem og einhverskonar flaututóna. Ungur drengur hér rétt hjá sést endrum og eins þramma með gítar og gott ef bróðir hans (eða eitthvað) hafi ekki blásturshljóðfæri undir höndum. Einstaka sinnum hafa mér borist trompet tónar til eyrna, frá næstu húsalengju að ég tel. Gott ef það er bara ekki þessi drengur hér!

Spurning hvað mínir tilvonandi grannar dundi sér við!

18. jún. 2005

17

Sice er í bænum um helgina og eyddum við síðdeginu og kvöldinu í gær niðrí bæ. Við stóðum nú aldrei lengið við á hverjum stað. Röltum mikið um bæinn og snæddum á Shalimar.

Veðrið náttúrulega klikkað og gerði alveg daginn.
Ekki þótti mér nú tónlistaratriðin neitt gríðarlega spennandi. Sá þó ágætis latinband spila á Ingólfstorgi, þar sem Steini Teague var að spila ásamt fleirum. Ekki næ ég alveg þessu samstarfi þeirra Hildar Völu og Stuðmanna. Brilliant "múv" af þeirra hálfu (svona fyrir sumarið a.m.k.) en held að Hildur ætti nú bara að setja saman eigið band.
Annars vorum við bara komin snemma heim.
Góðar stundir!

15. jún. 2005

Hætta í kaffinu ..? ;-)

MAGNESIUM MAKES YOUR BRAIN WORK BETTER
MAGNESIUM GIVES YOU ENERGY


Skola því niður með lýsi?

M-Project - lán - free jazz

Matti er búinn að hóa saman M-Projectinu og er verið að reyna að hittast vikulega og telja í lögin hans. Krefjandi skítur hjá kallinum. Skemmtilegt.

Það gengur prýðilega þrátt fyrir að enn eigi allur hópurinn eftir að hittast á sama tíma. Upptekið lið...! Eða eitthvað.

Í öðrum fréttum er það t.a.m. að allar okkar lána-umleitanir virðast vera að smella saman, þannig að.... best að dusta rykið af sultarólinni.


Svo er free jazzinn að ríða öllum tröllum á eftirfarandi mp3-bloggum:

www.ofmirroreye.net

www.justforaday.blogspot.com

Malus í Borgarnesi 24. júní

Hljómsveitin Malus mun spila á Búðarkletti föstudaginn 24. júni n.k.

Tónleikarnir hefjast kl. 22:30.

Fögnum miðsumri, Jónsmessu, og bara öllu... og röltum á "Klettinn"

Flott tjaldstæði í Borgarnesi og nágrenni, þannig að það er enginn afsökun... ;)

Meira síðar..!

14. jún. 2005

Í dag...

Skrifaði ég undir pappíra (nokkrir eftir samt). Fór í ræktina. Fræddist um og grófst fyrir um tengsl fjölskyldu Ásu Bjarna. við Brúarlands/Hrafnkelsstaða hluta minnar familíu. Heilmikill samgangur þar á milli. Æfði mig og skrifaði upp hluta af bassalínu.

Talandi um samgang og samstarf þessara fjölskyldna...! Þá kom Ása mér skemmtilega á óvart í gær. Hún FRAMKVÆMDI nokkuð sem ég hef verið að spá í svona öðru hvoru í smá tíma. Ekki hef ég minnst einu orði um þessar vangaveltur mínar við nokkurn mann. Ekki fann ég neinn flöt á þessum pælingum mínum, reyndi svo sem ekkert sérstaklega kannski heldur. En Ása virðist hafa fengið hugrenningar mínar beint í æð.

Hún kynnti fyrir mér frumsaminn texta eftir sjálfan sig sem hún samdi við lagið mitt You Turn.
Magnað!

Það hefur svo sem jaðrað við "kúlmissi" vegna þess. ;-)

Spurning um að telja í fljótlega og sjá hvernig virkar.

Heyra má 2 útgáfur af laginu á netinu.

You Turn - upptaka frá burtfarartónleikum mínum í fyrra vor.
You Turn - Upptaka með Amalgam frá ágúst í fyrra.

Keith Jarrett

Eðal stuff....
frá árunum 1972 - 1989 sirka.

hehe!

www.theendofhumor.blogspot.com

Bloggsafn

Um mig / about me

Myndin mín
Bass player, father, husband, band member, musician, son, brother, hobby photographer, friend, coffee drinker,
    eXTReMe Tracker