Jæja þá fer að styttast í UK för mína. Það verður chillað í London yfir helgina og svo verður fjölmennt á Ronnie Scotts á mánudagskvöldið til að sjá Dave Weckl Quartet spila fyrir gesti og gangandi. Í quartetnum er t.a.m. bassaleikarinn Tom Kennedy sem ku þykja ansi slingur með gígjuna og verðu gaman að sjá og heyra þá spila.
Jazzclub Ronnie Scotts, location.
Annars var ég að bæta inn linkum á kantinn. t.a.m. hjá hollenska rafbassaleikaranum Frans Vollink, tékkið endilega á mp3 stuffinu hans svo er hann með ýmsar "transcriptions" líkt og kollegi hans Lucas Pickford.
Svo er stefnan að hafa smá Jaco Pastorius DVD áhorf niðrí FÍH annaðkvöld (mánudaginn 24 maí) kl. 20:00, fyrir áhugasama er einfaldast að mæta á svæðið, eða hafa samband.
Góðar stundir.
23. maí 2004
Veðrahamur
Jæja þá er maður búinn að sækja um á Jazzhátíð Reykjavíkur 2004. Sjáum til hvort þetta gengur eftir.
22. maí 2004
Já já !!
Fór á þetta fína stand up á fimmtudaginn. Minnir að ég hafi ekki farið á stand up síðan á Radíusbræður fyrir svona 10 + árum síðan. Anyways .. skemmtun góð Pablo Fransico fór á kostum. Í gær skellti ég mér á tónleika Jagúar flokksins á NASA. Flutt voru lög eftir Tómas R. Einarsson í útsetningum Samúels J. Samúelssonar. Bandið, sem var skipuð þónokkrum auka mönnum, var dúndur þétt að venju. Stemmingin var svolitla stund að fara að stað, því fólk ÁTTI jú að dansa. Ég sat nú samt á rassgatinu þar til í lokinn þegar ég var hættur að sjá á sviðið sökum iðandi manngrúans á gólfinu...! En það tók semsagt tíma að fá fólk í dans! Eitthvað gerðist þegar Bogomil Funk (áður Font) hóf upp raust sína. Sumt fólk getur ekki dansað nema það sé söngur, og það syngi með !! .. magnaður andskoti..! En þetta var allt mjög vel heppnað og óska ég Samma og félögum til hamingju með vel heppnað verkefni! Það er séns að sjá seinni tónleikana í KVÖLD 22 maí kl. 21:00 á NASA. Mæli með því...!
19. maí 2004
Elvin Jones látinn.
Þá hefur en einn jazzleikarinn horfið yfir móðuna miklu, trymbillinn Elvin Jones er látinn. Sjá frétt í Jazztimes.
18. maí 2004
17. maí 2004
Langur dagur...!
Vaknaði 8:00 spilaði í fjórum stigsprófum fór svo í vinnuna og svo nemendatónleikar.. best að koma sér heim fljótlega ....
14. maí 2004
Próf ..
Annars var prófdagur hjá nemendum mínum í gær, meðaleinkunn var 8,42. Langur dagur þann daginn.
Hvernig væri að skella sér..!!
á North Sea Jazz Festival .. t.d. Jaco Pastorius Big Band með Richard Bona á bassa. og hellingur af gaurum..!
11. maí 2004
Everyday people..!
Kennsla í gær.. mest svona verið að fara yfir verkefni komandi ársprófa hjá nemendunum mínum, sem verða á fimmtudaginn næsta. Á vikunni eru svo eru slatti af æfingum vegna stigsprófa annara nemenda í FÍH, mér telst til að ég komi að fjórum prófum. Gaman að því. Annars fór ég aftur í ræktinni í dag..! Stemming!
9. maí 2004
5. maí 2004
2. maí 2004
Pictures from Ung Jazz 2004 @ Hotel Borg in Reykjavík, and the jam session at Kaffi List.
Vaðandi hressleiki... og Egill Ólafsson í stuði. Já og Davíð Þór Jónsson. .. Morten Lundsby.
Góða skemmtun ... God fornøjelse!!!!
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
Bloggsafn
-
▼
2004
(273)
-
▼
maí
(19)
- All that jazz!
- Congratulations Siim..!!
- Veðrahamur
- 31...!
- Test I'm trying out this new "Blogger Users Can ...
- Já já !!
- bíddu ha??!!
- Elvin Jones látinn.
- Graduation pics!!
- Fín mynd .. hvað varð um fókusinn??
- Langur dagur...!
- Davíð Þór Jónsson með álegg dagsins. Smurostur me...
- ;)
- Próf ..
- Hvernig væri að skella sér..!!
- Everyday people..!
- Já jæja.. þá er maður búinn að þessu..! Fór svo út...
- hmm best að prufa...!
- Pictures from Ung Jazz 2004 @ Hotel Borg in Reykja...
-
▼
maí
(19)
Um mig / about me
- Siggidóri
- Bass player, father, husband, band member, musician, son, brother, hobby photographer, friend, coffee drinker,