Fyrir þau ykkar sem voru ekki búin að frétta af því, þá er ég núna að njóta fæðingarorlofs sem mun vara fram að jólafríi. Hendugt ha? ;-)

Þannig það slitnar varla slefan á milli okkar feðga þessa dagana (hann sér um slefið...).

Já margt að gerast hjá
Andreas Úlfi. Hann er farinn að rölta um með stuðningi Brio kerrunar sinnar, nú og svo er skriðið um allt að sjálfsögðu og tætt og nagað. A.m.k. 1 tönn komin, og fleiri á leiðinni eins og gengur. Allt að gerast ;-) og það gerist hratt. Babblið þróast og hvað eina. Nýjasta sportið hjá honum er að skrækja/"öskra" af þvílíkum styrk að sker í eyru.... og er ég nú ýmsu vanur í þeim efnum. Þannig að stuð í bæ! :)



Menn Ársins eru í óða önn að æfa frumsamið efni. Við erum búnir að bóka hljóðver á Jótlandi í Danaveldi og munum við læsa að okkur dagana 13.-17. nóvember n.k. Staðurinn er
Lundgaard stúdíóið. En þar hafa jú ýmsir íslenskir tónlistarmenn hljóðritað nýlega,
Magni og
Jagúar svo dæmi séu tekin. Lundgaard hljóðverið er
staðsett hér.



Menn Ársins eru að spila núna um helgina. Á föstudaginn erum við á
Hressó og hefjum við leik um kl. 22:00 og á laugardaginn erum við á
Café Aroma í Hafnarfirði og byrjum við að spila um miðnættið.
... og ekki nóg með það heldur verðum við "uppteknir" frá hádegi á laugardag niðrí
Stúdíó Sýrlandi þar sem við munum hljóðrita lag eftir fyrrum bassaleikara
Manna Ársins,
Þórarinn Freysson heitir hann.

Lagið komst inn í forkeppni Evróvision Söngvakeppninar (sjá:
Laugardagslögin á RÚV), og höfundirinn er fjarri góðu gamni á Englandi, þannig að
Mennirnir hlupu undir bagga.
Að því er ég best veit verður lagið flutt í þættinum
Laugardagslögin þann 24. nóvember n.k.
Þannig að ... í nógu að snúast. Skemmtilegir tímar framundan, eins og alltaf. ;)